JUST DO IT
08.11.2007 14:52:07 / birnabald

Bara varð...

...að setja þetta hérna inn þar sem þið eruð svo dugleg að kom hingað þrátt fyrir uppgjöf í tjellunni :)

 Skoðið þessa snilld: http://youtube.com/watch?v=Pfx4DzETkZ4


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 23:27:31 / birnabald

Veriði bless....en ekkert stress...

 

Það var nottla BARA svaðalega gaman í ORLANDO...sjæse...ef þér langar í "gefins" NIKE föt....taktu þá flugið þangað! Ég skal segja þér það....

 Það var sem sagt verslað yfir sig þessa 8 daga sem við vorum úti....og þrátt fyrir 30-38 stiga hita og sól lágum við í svona 30 mín. í sólbaði.  Aha...það þýðir ekkert að eyða tímanum á svoleiðis vitleysu þegar nike outletin eru opin 10.00-21.00 ;) Bara snilld :)

...og talandi um barnafötinn...úfff...mar er bara á launum við að versla þau þar eins og Garðar bró segir það!!!!

Mikael Breki var alveg hreint ótrúlega þolinmóður við mömmu sína...grunar að hann verði pínku "búðafan"...allavega mun ég reyna að kenna honum góða siði hvað verlunarferðir varðar....mohahaha....þessi elska ;) Flugið út og heim aftur gekk líka alveg eins og í sögu þannig nú bíður mar bara spenntur eftir næstu ferð :) Tíhíhíí....:)

Ég setti annars inn myndir á síðuna hjá Mikael Breki ef þið viljið skoða.

En út í allt aðra sálma.  Nú er ég staðráðin í að hætta að bulla hérna á alheimsvefnum!! Ég hreinlega hef ekki tíma!  Þetta er samt búið að vera TÆR snilld...og það sem mar getur sjokkerað fólk með hinum ólíklegustu orðum!! Hver man ekki eftir "Olíuheilunum" og sjónvarpstattooi á ökklann svo eitthvað sé nefnt:)  Er einmitt mikið að spá í að fá mér lítið NIKE merki inn í tv-ið....það lúkkar þá allavegabetur ;)

En jæja YFIR og út yndislega fólk og munið bara eitt...ef þið eruð í einhverjum vafa:    

"JUST DO IT"

Bibban á Grávallargötu kveður


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 21:24:05 / birnabald

Enda ég á bekknum eftir ORLANDO?

 

Hummm...vona nú ekki...

Sendi ykkur bara hlýjar hitarigninga, þrumu og eldingar kveðjur....eða já ef flugmennirnir á vélinni fara ekki í verkfall á morgun!  Veit samt að Garðar bróðir klikkar ekki en spurning með restina af crew-inu.....

 Túrilúúúúúú....

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 13:02:39 / birnabald

...og auðvitað varð NIKE fyrir valinu

Mikið verður nú gaman að þjóta um á svellinu á þessum elskum :) Ótrúlegt en satt þá er ég búin að skauta á sömu görmunum síðan 1999!! Jabb...hin nýjungagjarna Bibba á ekki einu sinni til orð.... entærnar þola ekki lengur við......Þannig VISA kortið ákvað að gefa mér nýja :) Takk plastpungurinn minn ;o)

....og nú er bara að vona að þeir passi....Tímdi nefnilega ekki að kaupa þá á 50.000 hér á íslandi heldur fékk þá á um 20.000 þús. frá California:) AHA....ótrúlegt hvað það er KLÍNT á allt hérna á klakanum! Hverng er þetta hægt??? Ég passa einmitt ekki í Junior skauta og þarf því senior og þeir eru 20.þús dýrari.....BARA AFÞVÍ ÉG ÞARF 1 númeri stærri!! Klikkun!!...Þannig mér fannst bara fínt að senda þá á hótelið úti á Florida og sleppa við tollinn:) Click to enlargeSWEEEEET...

Auddiað pantaði ég aðeins meira....sokka, hlíf fyrir "vinkonuna" og eina crazy flotta hockeytösku...ég meina ég er að fara í NIKE outletin þarna úti og verð að koma því heim...bahahaha...

Annars eru allir voðalega spenntir...hugsa varla um neitt annað:) Meiri segja Mikael Breki er hættur að sofa fyrir spenning......


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 19:07:27 / birnabald

Mamma var bara alveg “SPRUNGT” á því

 

Júbb…ég hef sjaldan verið jafn þreytt og bara án gríns varla getað meira eftir strandblaksmótið um helgina….svona er víst að vera ekki í formi! Ég flaug suður með fyrsta flugi á laugardaginn og skildi strákana mína bara eftir.  Mjög skrítið að hugsa ekki um MB allan daginn en voðalega kósý að fá einn svona dag með sjálfum sér eftir um 6 mán. breytingu.

Það var allavega svaka stuð hjá öllum í sandinum og ótrúlega gaman að sjá hvað það voru mörg lið með í ár.  Í kvennariðlinum voru 9 lið skráð en 8 lið í karlaliðinu.  Við Lilja stóðum okkur helv…vel miðað við að hafa EKKERT æft saman og hvað þá snert blakbolta í langan tíma! En við töpuðum fyrir siguvegurunum, Heiðu og Þórey, í ODDA….aha og ekki nóg með það þá töpuðum við eftir að hafa verið 11-4 YFIR!!!! Hrinan endaði svo 16-14 þeim í hag! Ekki spyrja mig hvernig við fórum að því að tapa þessu snilldar forskoti…..”it´s ain´t over till the fat lady sings” sagði einhver og VÁ hvað er mikið til í því ! En það þýðir víst ekki að grenja það J

…úfff hvað mar er eitthvað líbó á því að TAPA….hehehe…Enda er ég á leið til ORLANDO…eða hvort smassið frá Lubbu mágkonu minni í ANDLITIÐ hafi ruglað mig eitthvað í ríminu! Shiiitt hvað sú gamla getur bombað…ég sé ennþá bara stjörnur og hálsinn er nett stífurJ Góð í þessu gellan enda kenndi ég henni allt sem hún kann! Mohahahahaha…… Stigamót BLÍ Þingeyri 2006 - Beach Volley (Flott Lubba)

 

Við Lilja endum annars í 3.sæti, þannig medalíuna fengum við um hálsinn... ég þurfti reyndar að skunda í flug enda var ég ekkert voðalega þyrst í bronsið...meira svona fyrir gullið en æji mar......við tökum þetta bara NÆST…

 

Beach Volley - Íslandsmót 2007

 

Daginn eftir bjóst ég síðan við vondu heimsókninni….Jú nefnilega hinum hefbundnu strengjum!…en ótrúlegt en satt þá var ég bara nokkuð góð.  Svo nett vont að spenna mallann og axlirnar hafa nú alveg verið liðugri þannig ég get ekki kvartað. 

 

En bíddu ha?? Ertu að grínast????Langar þig til að gefa mér dollara…um að gera að millifæra bara á Bibbuna ;)  


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 21:33:15 / birnabald

Bjóst engan veginn við þessum glaðning ;)

Hvað haldiði að við familýjan séum að fara að gera þann 11.september næstkomandi???? Ykkur grunar það nú varla....eða hvað ? Þekkið þið kannski Bibbuna út í gegn???

Aha.... það er rétt hjá þér....við erum að fara til FLORIDA í rúmlega viku;)

...og ég get ekki beðið eftir að tralla um öll ódýru NIKE fötin í þessar YNDISLEGU búð ;)

Ohhhhhhh lífið er svooooo frábært :)


» 11 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 21:34:04 / birnabald

Ég hitti BELJUNA í fyrsta skoti

...aha tjallinn er farin á HREINDÝR og fékk sína stóru belju í dag ;) Varla heyrt hann æstari þegar hann hringdi í kvöld enda búin að elta kvikindin í allan dag :) Félagar hans fengu síðan ína tarfa þannig það eru allir sáttir. Ég ætla mér sko með næst...ekki spurning.... EN niiii ekki til að skjóta litla rúdolf...bara horfa á hann þjást greyið. En æji dýrin þjást nú kannsi ekki mikið en æjiiii þetta er pínu sorglegt ferli.....

En talandi um bústaðaferðina....skuggalega gaman að slappa svona af og borða góðan mat;)

Þúsund þakkir girlur, makar og auddiað litlu skinnin :)

Það er náttla aldrei lognmolla í kringum mann...erum að fara í borgina næstu helgi.  Þar mun ég hoppa og skoppa í sandinum þar sem íslandsmótið í beachinu fer fram í Kóparvogi.  Við Lilja Jóns munum sulla saman og heyrst hefur að mörg sterk lið séu búin að skrá sig....þannig við verðum að taka á honum STÓRA okkar:)  En ÞOL-STYRKUR OG KRAFTUR...hvað er nú það...frekar erfitt að skauta á ísnum áðan....jebsý pepsí hockey æfingarnar eru að byrja...vííiíí...en þolið hlýtur að laaaaaagast....hóst hóst...

...og hey já.... NÚ MUNAÐI SKO "MJÓU"....HALDIÐ ÞIÐ EKKI AÐ ÉG HAFI NÆSTUM VERIÐ REKIN ÚTAF EBAY!!!!! Litla hjartað mitt tók smá kipp þegar ég sá hvað var í gangi! Einhver gæji var að reyna að hösla money af mér! En Bibban skrifaði bara feitt e-mail til baka og reddaði málunum....alltaf gott að vera búin að kenna enskuna...fjúfffff hvað ég notaði stóru orðin... violate-misinterpretation-rectify og þar fram eftir götunum ;)

 En jæja hafið það gott were ever you are


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 23:05:04 / birnabald

Gamanið heldur áfram

Versló afstaðinn með öllu sem fylgir henni….sem sagt sukk og svínerí….þó aðallega í matarbitunum…ég skal segja ykkur það!

Það var auðvitað svaka stuð hérna í Skessunni og má eila segja að mar sé pínu einmanna hérna núna þar sem enginn gistir í stofunni…

Svo gerðust nú undur og stórmerki….haldið þið ekki að tjellan hafi skellt sér út á djammið á sunnudagskvöldið eftir um árshvíld.  Við skutlurnar Jóhönnu og Ernu ákváðum að hafa smá GIRLnight og segja má að við höfum skemmt okkur nokkuð vel J

  

  

Þrátt fyrir að sumarið sé að enda er gamanið sko bara rétt að byrja hjá okkur.  Næstu helgi er nefnilega GELLUHITTINGURINN MIKLI þar sem aðalskutlurnar, makar og börn munu hittast á velvöldnum stað og þar verður sko sprellað út í rauðann dauðann  enda er LB nefndin búin að sitja sveitt við undirbúning í allt sumar….

 

Jiiiiiiii...hvað mig hlakkar til að hitta ykkur allar :)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 18:17:52 / birnabald

Alles gut

 

Jæja... er ekki komin tími til að tjá sig aðeins á alheimsvefnum.... Sem betur fer náðu áttfætlurnar ekki fótfestu hér í Skessunni þar sem “Manni” meindýraæta kom og drap þær....fjúúff...þær voru sko ekkert eðlilega ÓGEÐSLEGAR!!!

En úr köngulóafréttum og í olnbogafréttir....þá líður mér bara MIKLU BETUR í hendinni...sýklalyfin fóru loksins að virka og bólgan hjaðnaði á nokkrum dögum þannig ég er nánast eins og ný :) Allavega komin úr gifsinu og er ég eins og barnsrass á vinstri olnboga þar sem húðin er GLÆNÝ og mjúk.   Ótrúlegur munur að vera komin með tvær hendur á ný…díííí…ég gæfi ekki í það vera einhent!

VERSLÓ segjiði…er jú næstu helgi..Við litla familían ætlum bara að vera heima enda eigum við von á nokkrum gestum Það verður því stuð í Skessunni og ef þú átt leið um ertu ávallt velkomin;)

En jæja litli tappinn er vaknaður…sem by the way sofnaði alveg sjálfur í fyrsta skiptið! Get nú samt ekki státað mig af því að hafa lagt hann inn í rúm og gengið út…heldur sá nú STÓRmóðirinn hún Stefanía um það….ég er bara vön að lulla hjá honum svona rétt á meðan hann sofnar…hehehe..kannski mar reyni að fara að breyta því…

KNÚS

\"\"


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 23:56:57 / birnabald

ALLT HÆTTULEGT Í DAG

 

 

Alltaf þegar mar er í fríi líður tíminn ennþá hraðar en á venjulegum degi.  Afhverju er það??

Núna er Mikael orðin 5 mánaða og við búin að vera í geggjuð fríi fyrir vestan og í fellihýsi hér og þar um suðurlandið.  Það er mikið búið að hlægja, sprella og ég tala nú ekki um matarinntökuna….fjúffff… en rosalega er þetta búin að vera góður tími…

 

…....þar til síðastliðinn sunnudag!!!!! Ég er nátturulega bara snillingur í koma mér í smá vandræði!  Þar sem við leigðum fellihýsið í viku ætluðum við ekki að koma heim fyrr en á fimmtudaginn 19.júlí en neibb ég kom fljúgandi með mömmu gellu sem náði í mig og Mikael Breka, þar sem ég gat ekki haldið á honum í vélinni, á þriðjudaginn….ég var komin með sýkingu í olnbogann….AHA....OLNBOGANN…(eða réttara sagt olnbogapokann) hann var orðinn fimmfaldur og þurfti ég því að fara í gifsspelku og fá sýklalyf í æð á Landspítalanum.  Hugsanlega var pínku, pínku, pínku lítið sár þess valdandi!!!!En jæja..,þegar norður var komið ákváðu læknarnir að ég þyrfti að mæta 4 x á dag á F.S.A. til að fá lyfið í æð.  Því miður hefði handleggurinn lítið sem ekkert lagast í morgun og því var ákveðið að skera á bólguna í morgun…og ég bið til guðs um að það hjálpi þessu til betri vegar þar sem ég hefði getað slitið augun úr doktornum  þar sem sársaukinn var nánast óbærilegur,,,,hélt ég myndi ekki upplifa svona sársauka fljótt aftur…enda ekki nema um 5 mán. frá síðasta “sársaukarembing” ;)…hehehe… annars er nú staffið þarna voðalega fínt. Hálf fyndið samt að sjá hvað vinnubrögðin eru misjöfn….en auðvitað erum við jafn misjöfn og við erum mörg ;)

Get varla beðið eftir að gifsið verði rifið af mér á morgun…vona að bólgan hafi minnkað enda hef ég enga þolinmæði í þetta lengur og hvað þá sonur minn…hehehehe…frekar leiðinlegt að geta ekki haldið á honum og brjóstagjöfin er frekar spes en og sjá má :

 

 

Svo er ég ekkert lítið pist að missa af strandblaksmótinu sem er um helgina….ARG…

 

En já vá…hvað haldiði að hafi tekið á móti okkur hérna í SKESSUNNI???

 

Svona óteljandi kvikindi hér og þar um húsið! …ég er ekki að grínast að við erum að tala um kóngulóaFUGLATEGUND…þær eru HUGES…aldrei séð svona ógeðis áttfættlur á Íslandi!  Enda var hringt med de samme í meindýraeyði!OJJJJJ bara….

 

 

En jæja…best að hugsa um jákvæðuhliðarnar…ég er á lífi!

 Ps, ef þú færð sár á olnbogann – fylgstu þá með því ;o/  Þótt það sé á stærð við litla freknu…….

» 12 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 23:55:32 / birnabald

Sko nóg hægt að bardúsa í Dýrafirði

Höfum það ógó gott hérna á Þingeyri...Sólin er búin að sleikja okkur í marga daga og ef einhver er til í "freknukeppni" þá er ég sko GAME :)

Förum í borgina á morgun...mar má nú ekki missa af lokabáráttunni af útsölunum...bahahaha... en svo eltum við bara veðrið með fellihýsi í eftirdragi.  Ætluðum að vera farin suður en ákváðum um að sleppa landsmótinu þetta árið! Enda illa gott að vera hérna í Dýrafirði ;)

Tóti sá annars frekar mikið eftir því að hafa ekki dregið krossarann með sér hingað vestur en auðvitað fann hann bara annað tryllitæki til að leika sér á ;)

Skoðið þetta:

http://www.barnanet.is/mikaelbreki/?sida=myndband&myndband=6499

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 15:51:25 / birnabald

Styttist í fríið góða

Já undur og stórmerki gerast víst......   

Haldið þið ekki að Þórður Sigmundur Sigmundsson sé að fara í barneignarfrí allan júlí og því ætlum við litla familýan að aka nokkrar kílómetra um landið ;)  Fyrst skellum við okkur á Dýrfjarðadaga á Þingeyri, síðan á landsmót í Kóparvogi og því næst pikkum við upp eitt stykki fellihýsi sem við munum draga á eftir okkur næstu vikuna með stoppum hér og þar um suðurlandið  ;)

Ég mun því ekki móðga einn eða neinn hérna á blogginu á meðan....bahaha...get bara ekki hætt að minnast á þetta!

Annars er skvísan þeirra Karenar og Grjóna komin með nafn.  Hún var skírð SUNNA RÓS og finnst mér hún bera það nafn einstaklega vel enda voða björt og sælleg þessi elska.  Svo áttaði Lóa sig á því að Mikael Breki hafi alveg farið með "S" "skírnarregluna" í vinkonu hópnum!!! Jújú...fyrst fæddist Sævar, svo Sara, Mikael og að lokum Sunna..... Eygló ákvað því að kalla hann bara Smikael.......  ;) En ég maina það er bara pressa á ykkur hinar að skíra ykkar ófæddu börn eitthvað EMM..... koma svo HARPA, KATA, LÍNEY, EYGLÓ, FJÓLA, GUÐBÖRG....tíhíhíhíhí...

En jæja við MB erum að fara í 2.ára afmæli einmitt til SÆVARS hennar Jóhönnu...aha TVEGGJA ÁRA....jiiii hvað tíminn líður hratt.......

(Sævar Eðvald töffari)

 

Hafið það gott :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 39
Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti